Esther 3:12 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá var skrifurum konungs stefnt saman, þrettánda dag hins fyrsta mánaðar, og var nú skrifað með öllu svo sem Haman mælti fyrir til jarla konungs og til landstjóranna í öllum skattlöndunum og til höfðingja allra þjóðanna, í hvert skattland með skrift þess lands og til hverrar þjóðar á hennar tungu. Var þetta skrifað í nafni Ahasverusar konungs og innsiglað með innsiglishring konungs.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Á þrettánda degi fyrsta mánaðarins var riturum konungs stefnt saman og tilskipun skráð sem í öllu var eftir fyrirmælum Hamans. Var hún síðan send öllum skattlandsstjórum konungs, svo og héraðshöfðingjum og leiðtogum sérhverrar þjóðar, til hvers héraðs með letri því sem þar var notað og til hverrar þjóðar á tungu hennar. Var tilskipunin gefin í nafni Xerxesar konungs og staðfest með innsigli hans.