Esther 3:8 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og Haman sagði við Ahasverus konung: “Ein er sú þjóð, sem lifir dreifð og fráskilin meðal þjóðanna í öllum skattlöndum ríkis þíns. Og lög þeirra eru frábrugðin lögum allra annarra þjóða, og lög konungs halda þeir ekki, og hlýðir eigi að konungur láti þá afskiptalausa.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þá sagði Haman við Xerxes konung: „Meðal þjóðanna hvarvetna í héruðum ríkis þíns er ein þjóð sem hefur dreifst víða og sker sig úr öllum öðrum þjóðum. Lög þessarar þjóðar eru frábrugðin lögum allra annarra þjóða, lög konungs virðir hún að vettugi. Verður ekki við það unað að konungur láti þetta óátalið.