Esther 6:13 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og Haman sagði Seres konu sinni og öllum vinum sínum frá öllu því, er fyrir hann hafði komið. Þá sögðu vitringar hans við hann og Seres kona hans: “Ef Mordekai, sem þú ert tekinn að falla fyrir, er af ætt Gyðinga, þá megnar þú ekkert á móti honum, heldur munt þú gjörsamlega falla fyrir honum.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Haman greindi Seres, konu sinni, og vinum sínum frá öllu sem komið hafði fyrir hann. Og kona hans, Seres, og ráðhollir vinir hans sögðu við hann: „Það er farið að halla á þig í samskiptum við Mordekaí þennan. Og sé hann af ætt Gyðinga ert þú einskis megnugur og öruggt að þú bíður lægri hlut fyrir honum.“