Esther 7:9 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og Harbóna, einn af geldingum þeim, er þjónuðu konungi, mælti: “Sjá, gálginn, sem Haman lét gjöra handa Mordekai, sem þó hafði talað það, er konungi varð til heilla, stendur búinn í húsagarði Hamans, fimmtíu álna hár.” Þá mælti konungur: “Festið hann á hann!”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Harbóna, einn af geldingum konungs, sagði þá: „Haman lét reisa gálga og ætlaði hann Mordekaí, manninum sem þó hafði bjargað konungi með orðum sínum. Og nú stendur gálginn tilbúinn í húsagarði Hamans, fimmtíu álnir á hæð.“ Þá sagði konungur: „Festið Haman á hann!“