Esther 8:9 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og skrifurum konungs var þá stefnt saman, hinn tuttugasta og þriðja dag hins þriðja mánaðar - það er mánaðarins sívan - og var þá skrifað með öllu svo sem Mordekai bauð, til Gyðinga og til jarlanna og til landstjóranna og til höfðingja skattlandanna frá Indlandi til Blálands, til skattlandanna hundrað tuttugu og sjö, í hvert skattland með skrift þess lands og til hverrar þjóðar á hennar tungu, og einnig til Gyðinga með þeirra skrift og á þeirra tungu.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Á tuttugasta og þriðja degi þriðja mánaðar, mánaðarins sívan, voru ritarar konungs kallaðir saman. Rituðu þeir hvað eina, sem Mordekaí mælti fyrir, til Gyðinga, til skattlandsstjóranna, landshöfðingjanna og höfðingja héraðanna hundrað tuttugu og sjö, allt frá Indlandi til Eþíópíu, til hvers héraðs með letri þess héraðs, til hverrar þjóðar á tungu hennar og jafnframt til Gyðinga með þeirra letri og á þeirra tungu.