Exodus 12:23 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Því að Drottinn mun fara yfir landið til þess að ljósta Egypta. Hann mun sjá blóðið á dyratrénu og báðum dyrastöfunum, og mun þá Drottinn ganga fram hjá dyrunum og ekki láta eyðandann koma í hús yðar til að ljósta yður.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þegar Drottinn gengur um til að ljósta Egypta sér hann blóðið á dyratrénu og báðum dyrastöfunum og þá gengur Drottinn fram hjá dyrunum. Hann mun ekki hleypa eyðandanum inn í hús ykkar til að ljósta ykkur til bana.