Exodus 13:17 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þegar Faraó hafði gefið fólkinu fararleyfi, leiddi Guð þá ekki á leið til Filistalands, þótt sú leið væri skemmst, - því að Guð sagði: “Vera má að fólkið iðrist, þegar það sér, að ófriðar er von, og snúi svo aftur til Egyptalands,”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þegar faraó sleppti fólkinu leiddi Guð það ekki beina leið til lands Filistea þó að hún væri styst því að Guð hugsaði: „Ef til vill iðrast fólkið þessa þegar það sér að ófriðar er von og snýr þá aftur til Egyptalands.“