Exodus 16:23 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En hann sagði við þá: “Þetta er það, sem Drottinn sagði: ‘Á morgun er hvíldardagur, heilagur hvíldardagur Drottins. Bakið það, sem þér viljið baka, og sjóðið það, sem þér viljið sjóða, en allt það, sem af gengur, skuluð þér leggja fyrir og geyma til morguns.’”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
sagði hann við þá: „Þetta er það sem Drottinn sagði: Á morgun er hvíld, heilagur hvíldardagur fyrir Drottin. Bakið það sem þið þurfið að baka og sjóðið það sem þið þurfið að sjóða. En allt sem eftir verður skuluð þið leggja til hliðar og geyma til næsta morguns.“