Exodus 25:33 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þrír bikarar, í lögun sem möndlublóm, skulu vera á fyrstu álmunni, knappur og blóm. Þrír bikarar, í lögun sem möndlublóm, skulu vera á næstu álmunni, knappur og blóm. Svo skal vera á öllum sex álmunum, sem út ganga frá ljósastikunni.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þrír bikarar í lögun eins og möndlublóm skulu vera á fyrsta arminum með knappi og blómi og þrír bikarar í lögun eins og möndlublóm með knappi og blómi á næsta armi. Þannig eiga allir sex armarnir að vera sem ganga út frá ljósastikunni.