Exodus 29:34 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En verði nokkrar leifar af vígslukjötinu og brauðinu til næsta morguns, þá skalt þú brenna þær leifar í eldi. Það má ekki eta, því að það er helgað.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Verði einhverju leift til morguns af kjöti vígslufórnarinnar og brauðinu skaltu brenna leifarnar í eldi. Þess má ekki neyta því að það er heilagt.