Exodus 3:18 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þeir munu skipast við orð þín og skaltu þá ganga með öldungum Ísraels fyrir Egyptalandskonung, og skuluð þér segja við hann: ‘Drottinn, Guð Hebrea, hefir komið til móts við oss. Leyf oss því nú að fara þrjár dagleiðir á eyðimörkina, að vér færum fórnir Drottni, Guði vorum.’
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þeir munu hlusta á þig og þú skalt fara sjálfur ásamt öldungum Ísraels til Egyptalandskonungs og segja við hann: Drottinn, Guð Hebrea, birtist okkur. Nú viljum við fara þrjár dagleiðir inn í eyðimörkina og færa Drottni, Guði okkar, sláturfórnir.