Exodus 33:12 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Móse sagði við Drottin: “Sjá, þú segir við mig: ‘Far með fólk þetta.’ En þú hefir ekki látið mig vita, hvern þú ætlar að senda með mér. Og þó hefir þú sagt: ‘Ég þekki þig með nafni, og þú hefir einnig fundið náð í augum mínum.’
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Móse sagði við Drottin: „Þú sagðir við mig: Leiddu þetta fólk upp eftir. En þú hefur ekki sagt mér hvern þú ætlar að senda með mér. Samt sagðir þú sjálfur: Ég þekki þig með nafni og þú hefur fundið náð fyrir augum mínum.