Exodus 33:7 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Móse tók tjaldið og reisti það fyrir utan herbúðirnar, spölkorn frá þeim, og kallaði það samfundatjald, og varð hver sá maður, er leita vildi til Drottins, að fara út til samfundatjaldsins, sem var fyrir utan herbúðirnar.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Móse var vanur að taka tjaldið og reisa það utan við búðirnar í nokkurri fjarlægð frá þeim. Hann nefndi það samfundatjald. Þegar einhver vildi ganga til fundar við Drottin gekk hann út til samfundatjaldsins sem var utan við búðirnar.