Exodus 34:10 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Drottinn sagði: “Sjá, ég gjöri sáttmála. Í augsýn alls þíns fólks vil ég gjöra þau undur, að ekki hafa slík verið gjörð í nokkru landi eða hjá nokkurri þjóð, og skal allt fólkið, sem þú ert hjá, sjá verk Drottins, því að furðulegt er það, sem ég mun við þig gjöra.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Drottinn sagði: „Nú geri ég sáttmála. Ég ætla að gera þau kraftaverk frammi fyrir þjóð þinni sem aldrei áður hafa verið gerð í neinu landi eða hjá neinni annarri þjóð. Allt fólkið, sem með þér er, skal sjá verk Drottins. Það sem ég ætla nú að gera fyrir þig er ógnvekjandi.