Exodus 38:18 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Dúkbreiðan fyrir hliði forgarðsins var glitofin af bláum purpura, rauðum purpura, skarlati og tvinnaðri baðmull, tuttugu álna löng og fimm álna há eftir dúkbreiddinni, eins og tjöld forgarðsins voru.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Forhengið fyrir hliði forgarðsins var úr bláum purpura, rauðum purpura, skarlati og tvinnuðu, fínu líni, listilega gert. Það var tuttugu álna langt og fimm álna hátt í samræmi við breiddina á tjöldum forgarðsins.