Exodus 4:18 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Síðan fór Móse heim aftur til Jetró tengdaföður síns og mælti til hans: “Leyf mér að fara og hverfa aftur til ættbræðra minna, sem á Egyptalandi eru, svo að ég viti, hvort þeir eru enn á lífi.” Og Jetró sagði við Móse: “Far þú í friði!”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Móse fór nú aftur til Jetró, tengdaföður síns, og sagði við hann: „Ég vil fara til ættbræðra minna, sem eru í Egyptalandi, og sjá hvort þeir eru enn á lífi.“ Jetró svaraði: „Far þú í friði.“