Exodus 7:19 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá mælti Drottinn við Móse: “Seg við Aron: ‘Tak staf þinn og rétt hönd þína út yfir vötn Egyptalands, yfir fljót þess og ár, tjarnir og allar vatnsstæður, og skulu þau þá verða að blóði, og um allt Egyptaland skal blóð vera bæði í tréílátum og steinkerum.’”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Drottinn sagði við Móse: „Segðu við Aron: Taktu staf þinn og réttu hönd þína út yfir vatn Egypta, yfir fljót þeirra, yfir áveituskurði þeirra og yfir mýrar þeirra og yfir allar vatnsþrær þeirra og það verður að blóði. Blóð skal verða um allt Egyptaland, bæði í trékeröldum og steinkerum.“