Exodus 9:25 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og haglið laust til bana allt það, sem úti var í öllu Egyptalandi, bæði menn og skepnur, og haglið lamdi allan jarðargróða og braut hvert tré merkurinnar.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Um allt Egyptaland sló haglið allt niður sem var utan dyra, bæði menn og skepnur. Haglið lamdi einnig niður allar jurtir á jörðinni og braut öll tré úti á sléttunni.