Ezekiel 10:19 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá hófu kerúbarnir upp vængi sína og lyftu sér frá jörðinni að mér ásjáandi, er þeir fóru burt, og hjólin samtímis þeim. Og þeir námu staðar úti fyrir austurhliði musteris Drottins, en dýrð Ísraels Guðs var uppi yfir þeim.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Kerúbarnir lyftu þá vængjum sínum og hófu sig upp frá jörðinni fyrir augum mínum. Þegar þeir fóru voru hjólin við hlið þeirra. Þeir námu staðar við innganginn í austurhlið húss Drottins og dýrð Guðs Ísraels var yfir þeim.