Ezekiel 20:13 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En Ísraelsmenn voru mér mótsnúnir í eyðimörkinni. Þeir breyttu eigi eftir setningum mínum og höfnuðu lögum mínum, þeim er maðurinn skal halda, til þess að hann megi lifa, og hvíldardaga mína vanhelguðu þeir stórum. Þá hugði ég að úthella reiði yfir þá í eyðimörkinni til þess að gjöreyða þeim.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
En Ísraelsmenn risu gegn mér í eyðimörkinni. Þeir fóru ekki að lögum mínum og höfnuðu reglum mínum þótt hver sá sem hlýðir þeim lifi vegna þeirra. Þeir vanhelguðu hvíldardaga mína stórum. Þá hugðist ég úthella reiði minni yfir þá þarna í eyðimörkinni og tortíma þeim.