Ezekiel 20:21 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En synirnir voru mér mótsnúnir: Þeir lifðu ekki eftir boðorðum mínum og héldu ekki lög mín, svo að þeir breyttu eftir þeim, sem maðurinn þó á að halda, til þess að hann megi lifa; hvíldardaga mína vanhelguðu þeir. Þá hugði ég að úthella reiði minni yfir þá, að svala heift minni á þeim í eyðimörkinni.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
En synirnir risu upp gegn mér. Þeir fylgdu ekki lögum mínum og héldu ekki reglur mínar með því að framfylgja þeim, en hver sá sem hlýðir þeim lifir vegna þeirra. Þeir vanhelguðu hvíldardaga mína. Þá hugðist ég úthella reiði minni yfir þá og svala heift minni á þeim, þarna í eyðimörkinni.