Ezekiel 20:31 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Já, með því að bera fram fórnargjafir yðar, með því að láta sonu yðar ganga gegnum eld, saurgið þér yður á öllum skurðgoðum yðar allt til þessa dags, og ég ætti að láta yður ganga til frétta við mig, þér Ísraelsmenn? Svo sannarlega sem ég lifi, segir Drottinn Guð, vil ég ekki láta yður ganga til frétta við mig.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þegar þið berið fram fórnargjafir ykkar með því að láta syni ykkar ganga gegnum eld saurgið þið ykkur. Og allt fram á þennan dag saurgið þið ykkur á öllum skurðgoðum ykkar. Ætti ég þá að leyfa ykkur að leita svara hjá mér, Ísraelsmenn? Svo sannarlega sem ég lifi, segir Drottinn Guð, leyfi ég ykkur ekki að leita svara hjá mér.