Ezekiel 26:12 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og þeir munu ræna auð þínum og hrifsa burt kaupeyri þinn, brjóta niður borgarveggi þína, rífa niður þín dýrlegu hús og varpa á sjó út húsagrjótinu, viðunum og rofinu.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þeir munu ræna auðæfum þínum, hirða gróðann af verslun þinni. Múra þína munu þeir rífa og brjóta niður hinar glæsilegu byggingar þínar. Þeir munu fleygja steinunum, viðunum og leirnum úr þér út í hafsauga.