Ezekiel 3:20 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Ef hins vegar ráðvandur maður snýr sér frá ráðvendni sinni og fremur ranglæti, og ég legg fótakefli fyrir hann, svo að hann deyr, hafir þú þá eigi varað hann við, þá mun hann deyja fyrir synd sína, og ráðvendni sú, er hann hafði sýnt, eigi til álita koma, en blóðs hans mun ég krefja af þinni hendi.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þegar réttlátur maður snýr frá réttlæti sínu og fremur ranglæti læt ég hann hrasa: Hann skal deyja. Hafir þú ekki varað hann við skal hann deyja vegna syndar sinnar og réttlátra verka, sem hann hefur unnið, skal ekki minnst. En blóðs hans mun ég krefjast úr þinni hendi.