Ezekiel 31:14 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
til þess að engin tré við vatn skyldu verða hávaxin og eigi teygja topplim sitt upp í skýin, og til þess að stórhöfðingjar þeirra stæðu eigi hreyknir af hæð sinni, allir þeir er á vatni vökvast. Því að allir eru þeir dauðanum ofurseldir, svo að þeir verða að fara niður til undirheima, mitt á meðal mannanna, til þeirra, sem niður stignir eru í gröfina.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þess vegna skulu engin tré við vatnið verða hávaxin framar og teygja krónur sínar upp á milli skýjanna. Engin tré, sem drekka vatn, skulu ná hæð þeirra því að þau verða öll ofurseld dauðanum. Þau munu fara niður til undirheimanna, til þeirra manna sem grafnir hafa verið.