Ezekiel 31:16 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Ég skelfdi þjóðirnar með þeim gný, sem varð af falli hans, er ég steypti honum niður til Heljar, til þeirra, sem eru niður stignir í gröfina. Og þá hugguðust í undirheimum öll Edentré, ágætustu og bestu tré Líbanons, öll þau er á vatni höfðu vökvast.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Ég lét þjóðirnar nötra við dynkinn af falli hans þegar ég sendi hann til ríkis hinna dauðu ásamt þeim sem fara niður í gryfjuna. En í undirheimum létu öll Edenstré huggast, ágætustu tré Líbanons, öll trén sem drekka vatn.