Ezekiel 32:25 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Mitt á meðal veginna manna bjuggu þeir honum hvílurúm, ásamt öllu glæsiliði hans, og eru grafir þeirra umhverfis hann, allt saman óumskornir menn, er lagðir hafa verið sverði, - því að eitt sinn stóð ógn af þeim á landi lifandi manna. Og nú bera þeir vanvirðu sína með þeim, sem niður stignir eru í gröfina. Meðal veginna manna voru þeir lagðir.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Elam og öllu liði hans var fengin hvíla meðal þeirra sem reknir voru í gegn. Umhverfis hann eru grafir þeirra, allra hinna óumskornu sem voru lagðir sverði og breiddu út skelfingu á landi lifenda. Þeir bera nú skömm sína ásamt þeim sem grafnir voru. Þeim var komið fyrir innan um vopnbitna menn.