Ezekiel 32:30 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þar eru stórhöfðingjar norðursins allir saman og allir Sídoningar, er niður stigu helsærðir. Þrátt fyrir óttann, sem stóð af hreysti þeirra, eru þeir orðnir til skammar. Óumskornir liggja þeir hjá vopnbitnum mönnum og bera vanvirðu sína með þeim, er niður stignir eru í gröfina.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þarna eru allir höfðingjar landanna í norðri og allir frá Sídon. Þeir stigu niður ásamt vopnbitnum mönnum þrátt fyrir skelfinguna sem þeir breiddu út. Þeir urðu til skammar þrátt fyrir hreysti sína. Þeir liggja óumskornir hjá þeim sem lagðir voru sverði og bera skömm sína ásamt þeim sem grafnir voru.