Ezekiel 38:20 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá skulu fiskar sjávarins skjálfa fyrir mér og fuglar himinsins, dýr merkurinnar og öll skriðkvikindi, sem skríða á jörðinni, og allir menn, sem eru á jörðinni, og fjöllin skulu kollvarpast og hamrarnir hrynja og hver múrveggur til jarðar falla.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þá munu fiskar sjávarins og fuglar himinsins og dýr merkurinnar og öll kvikindin sem skríða á jörðinni og allir menn á jörðinni skjálfa frammi fyrir augliti mínu. Fjöllin munu klofna og hamrarnir hrynja og allir múrveggir jafnast við jörðu.