Ezekiel 38:8 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Eftir langan tíma munt þú útboðsskipun hljóta. Á síðustu árunum munt þú koma inn í það land, sem aftur er unnið undan sverðinu, til þjóðar, sem safnað hefir verið saman frá mörgum þjóðum á Ísraels fjöll, sem stöðuglega hafa í eyði legið, já, frá þjóðunum var hún flutt, og nú búa allir öruggir.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Eftir nokkurn tíma færð þú fyrirmæli þín. Að mörgum árum liðnum kemur þú til lands sem hefur verið unnið aftur undan valdi sverðsins. Þú kemur til þjóðar sem safnað var saman frá mörgum þjóðum á fjöllum Ísraels en þau voru lengi í eyði. Þessi þjóð var leidd frá framandi þjóðum og nú býr hún öll óhult þar.