Ezekiel 40:22 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og gluggar þess, forsalur og pálmar voru jafnir að máli við það, sem var í hliðinu, er vissi í austurátt. Var gengið upp að því um sjö þrep, og forsalur þess lá innan til.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Gluggarnir á forsal þessa hliðs og pálmaskreytingin í honum voru eins og í austurhliðinu. Lágu sjö þrep upp að því. Forsalur þess sneri inn á við.