Ezekiel 41:7 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og þau urðu æ breiðari, því ofar sem þau lágu kringum musterið, því að hliðarherbergin voru alveg upp úr hringinn í kringum musterið. Fyrir því minnkaði breidd hússins upp á við, og mátti ganga af neðsta gólfi hliðarhússins yfir neðra loftið upp á efra loftið.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Byggt var umhverfis allt húsið og breikkaði það upp á við frá einni hæð til annarrar. Gengið var frá neðstu hæðinni upp á þá efstu um miðhæðina.