Ezekiel 42:13 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og hann sagði við mig: “Norðurherbergin og suðurherbergin, sem liggja fyrir framan afgirta svæðið, það eru heilögu herbergin, þar sem prestarnir, er nálgast mega Drottin, eiga að eta hið háheilaga. Þar skulu þeir láta hið háheilaga og matfórnina, syndafórnina og sektarfórnina, því að staðurinn er heilagur.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Maðurinn sagði við mig: „Herbergin í álmunni norðan megin og í álmunni sunnan megin við afmarkaða svæðið eru heilög herbergi. Þar eiga prestarnir, sem nálgast Drottin, að neyta hinna háheilögu fórnargjafa. Þar eiga þeir að setja hinar háheilögu fórnargjafir, kornfórn, syndafórn og sektarfórn, því að þessi staður er heilagur.