Ezekiel 46:12 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og þegar landshöfðinginn ber fram sjálfviljafórn, brennifórn eða heillafórn sem sjálfviljafórn Drottni til handa, þá skal upp ljúka fyrir honum því hliðinu, sem í austur snýr. Síðan skal hann bera fram brennifórn sína og heillafórn, eins og hann er vanur að gjöra á hvíldardögum, og ganga síðan út, og þegar hann er farinn út, skal loka hliðinu á eftir honum.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þegar landshöfðinginn ber fram sjálfviljafórn, hvort heldur það er brennifórn eða heillafórn sem hann færir Drottni sem sjálfviljafórn, skal opna fyrir honum hliðið sem snýr í austur. Hann skal færa brennifórn sína eða heillafórn eins og hann færir þær á hvíldardegi. Því næst skal hann ganga út og loka hliðinu á eftir sér.