Ezekiel 46:9 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og þegar landslýðurinn gengur fram fyrir Drottin á löghátíðunum, þá skal sá, er inn hefir gengið um norðurhliðið til þess að falla fram, aftur út fara um suðurhliðið, og sá, er inn hefir gengið um suðurhliðið, skal aftur út fara um norðurhliðið. Enginn skal aftur út fara um það hlið, sem hann hefir inn gengið, heldur skal hann út fara um það hlið, sem gegnt honum er.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
En þegar fólkið í landinu kemur til að ganga fyrir auglit Drottins á hátíðunum skal sá sem kemur inn um norðurhliðið til að falla þar fram ganga út um suðurhliðið. Sá sem kemur inn um suðurhliðið til að falla þar fram skal ganga aftur út um norðurhliðið. Enginn má fara aftur út um það hlið sem hann kom inn um, heldur á hver maður að fara út um hliðið sem er gegnt honum.