Ezekiel 47:12 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En meðfram fljótinu, á bökkunum beggja vegna, munu upp renna alls konar aldintré. Laufblöð þeirra munu ekki visna og ávextir þeirra ekki dvína. Á hverjum mánuði munu þau bera nýja ávöxtu, af því að vötnin, sem þau lifa við, koma frá helgidóminum. Og ávextir þeirra munu hafðir verða til matar og laufblöð þeirra til lyfja.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
En á báðum bökkum fljótsins munu hvers kyns aldintré vaxa. Lauf þeirra mun ekki visna og ávextirnir, sem þau bera, aldrei þverra. Í hverjum mánuði bera þau nýja ávexti því að vatnið í fljótinu kemur frá helgidóminum. Ávextirnir verða hafðir til matar og blöðin til lækninga.“