Ezekiel 5:6 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En hún hefir sett sig upp á móti lögum mínum með meira guðleysi en heiðnu þjóðirnar og móti boðorðum mínum meir en löndin, sem umhverfis hana eru, því að þeir hafa hafnað lögum mínum og eigi breytt eftir boðorðum mínum.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
En íbúar hennar risu upp gegn lögum mínum þar sem þeir urðu guðlausari en þjóðirnar og andsnúnari ákvæðum mínum en íbúar landanna sem eru umhverfis þá. Þeir höfnuðu lögum mínum og fylgdu ekki ákvæðum mínum.