Ezekiel 8:2 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og ég sá, og sjá, þar var mynd, ásýndum sem maður. Þar í frá, sem mér þóttu lendar hans vera, og niður eftir, var eins og eldur, en frá lendum hans og upp eftir var að sjá sem bjarma, eins og ljómaði af lýsigulli.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Ég leit upp og sá veru sem líktist manni. Það sem virtust vera lendar hans og niður úr var eldur en frá lendum hans og upp á við var skær ljómi, líkur gljáandi hvítagulli.