Ezekiel 8:3 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og hann rétti út líkast sem hönd væri og tók í höfuðhár mitt, og andinn hóf mig upp milli himins og jarðar og flutti mig til Jerúsalem í guðlegri sýn, að dyrum innra hliðsins, er snýr mót norðri, þar er líkansúlan stóð, sú er vakti afbrýði Drottins.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Hann rétti það fram sem líktist hendi og greip í hárbrúsk minn. Þá hóf andinn mig upp milli himins og jarðar og flutti mig til Jerúsalem í guðlegum sýnum, að innganginum að innra hliðinu, sem snýr í norður, þar sem mynd afbrýðinnar er, sem vekur brennandi afbrýði.