Ezra 3:8 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Á öðru ári eftir heimkomu þeirra til húss Guðs í Jerúsalem, í öðrum mánuðinum, byrjuðu þeir Serúbabel Sealtíelsson og Jósúa Jósadaksson og aðrir bræður þeirra, prestarnir og levítarnir og allir þeir, er komnir voru úr útlegðinni til Jerúsalem, að setja levíta, tvítuga og þaðan af eldri, til að hafa eftirlit með byggingu húss Drottins.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Í öðrum mánuði á öðru ári eftir komu þeirra til húss Guðs í Jerúsalem hófust Serúbabel Sealtíelsson og Jesúa Jósadaksson handa ásamt öðrum bræðrum sínum, prestunum og Levítunum og öllum sem komnir voru aftur til Jerúsalem úr útlegðinni. Þeir settu nú Levítana, tuttugu ára og eldri, til að stjórna vinnunni við hús Drottins.