Ezra 5:8 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Konunginum sé vitanlegt, að vér höfum farið til skattlandsins Júda, til musteris hins mikla Guðs. Er verið að byggja það úr stórum steinum, og eru bjálkar settir inn í veggina. Er unnið kostgæfilega að verki þessu, og miðar því vel áfram hjá þeim.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Hér með tilkynnist konungi að við höfum farið til Júdahéraðs, til húss hins mikla Guðs. Verið er að byggja það úr stórum steinum og borðviður er lagður á veggina. Unnið er sleitulaust og verkið vel af hendi leyst.