Ezra 6:12 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En sá Guð, sem lætur nafn sitt búa þar, kollsteypi öllum þeim konungum og þjóðum, sem rétta út hönd sína til þess að breyta út af þessu eða til þess að brjóta niður þetta hús Guðs í Jerúsalem. Ég, Daríus, hefi gefið út þessa skipun. Skal hún kostgæfilega framkvæmd.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
En sá Guð, sem lætur nafn sitt búa á þessum stað, steypi hverjum þeim konungi og þjóð sem tekur sér fyrir hendur að breyta gegn þessu boði og eyða þessu húsi Guðs í Jerúsalem. Ég, Daríus, hef gefið þessa skipun, henni skal gaumgæfilega framfylgt.“