Ezra 6:8 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og ég hefi gefið út skipun um, hvað þér skuluð láta þessum öldungum Gyðinga í té til byggingar þessa Guðs húss. Skal mönnum þessum greiddur kostnaðurinn skilvíslega af tekjum konungs, þeim er hann hefir af sköttum úr héraðinu hinumegin Fljóts, og það tafarlaust.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Hér með gef ég fyrirmæli um hvernig þið eigið að hjálpa öldungum Gyðinga við byggingu þessa húss Guðs. Þessum mönnum skal greiða kostnaðinn að fullu af tekjum konungs frá skattlandinu handan fljóts svo að verkið tefjist ekki.