Ezra 8:35 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þeir er heim komu úr herleiðingunni, þeir hernumdu, er aftur sneru, færðu Ísraels Guði brennifórnir: tólf naut fyrir allan Ísrael, níutíu og sex hrúta, sjötíu og sjö lömb, tólf hafra í syndafórn - allt sem brennifórn Drottni til handa.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þeir sem komu heim úr útlegðinni, hinir landflótta, færðu nú Guði Ísraels brennifórnir, tólf naut fyrir allan Ísrael, níutíu og sex hrúta og sjötíu og sjö lömb og auk þess tólf geithafra í syndafórn. Allt þetta var fært Drottni að brennifórn.