Genesis 17:23 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá tók Abraham son sinn Ísmael og alla, sem fæddir voru í hans húsi, og alla, sem hann hafði verði keypta, allt karlkyn meðal heimamanna Abrahams, og umskar hold yfirhúðar þeirra á þessum sama degi, eins og Guð hafði boðið honum.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Abraham tók þá Ísmael, son sinn, og alla sem fæddir voru í húsi hans og alla sem keyptir höfðu verið, alla karlmenn í húsi sínu, og umskar þá á holdi yfirhúðar þeirra á þeim sama degi og Guð hafði boðið honum.