Genesis 20:9 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og Abímelek lét kalla Abraham til sín og sagði við hann: “Hvað hefir þú gjört oss? Og hvað hefi ég misgjört við þig, að þú skyldir leiða svo stóra synd yfir mig og ríki mitt? Verk, sem enginn skyldi fremja, hefir þú framið gegn mér.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þá kallaði Abímelek Abraham fyrir sig og sagði við hann: „Hvað hefurðu gert okkur? Hvað hef ég misgert við þig að þú skyldir leiða svo mikla synd yfir mig og ríki mitt? Þú hefur gert það við mig sem menn gera ekki.“