Genesis 27:41 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Esaú lagði hatur á Jakob sakir þeirrar blessunar, sem faðir hans hafði gefið honum. Og Esaú hugsaði með sjálfum sér: “Þess mun eigi langt að bíða, að menn munu syrgja föður minn látinn, og skal ég þá drepa Jakob bróður minn.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Esaú fjandskapaðist við Jakob vegna blessunarinnar sem faðir hans hafði veitt honum og hugsaði með sér: Þeir dagar munu koma að menn syrgja föður minn látinn og mun ég þá drepa Jakob, bróður minn.