Genesis 29:2 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og er hann litaðist um, sjá, þá var þar brunnur á mörkinni, og sjá, þar lágu þrjár sauðahjarðir við hann, því að þeir voru vanir að vatna hjörðunum við þennan brunn. En steinn mikill lá yfir munna brunnsins.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þar kom hann skyndilega auga á brunn úti á víðavangi og lágu þrjár sauðahjarðir við brunninn. Þar voru menn vanir að brynna hjörðunum. En stór steinn lá yfir opi brunnsins.