Genesis 31:43 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá svaraði Laban og sagði við Jakob: “Dæturnar eru mínar dætur og börnin eru mín börn og hjörðin er mín hjörð, og allt, sem þú sér, heyrir mér til. En hvað skyldi ég gjöra þessum dætrum mínum í dag, eða börnum þeirra, sem þær hafa alið?
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Laban svaraði Jakobi: „Dæturnar eru mínar dætur, börnin eru mín börn og hjörðin er mín hjörð og allt sem þú sérð heyrir mér til. Ætti ég í dag að gera dætrum mínum mein eða börnunum sem þær hafa alið?