Genesis 37:2 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þetta er ættarsaga Jakobs. Þegar Jósef var seytján ára gamall, gætti hann sauða með bræðrum sínum. En hann var smásveinn hjá þeim sonum Bílu og sonum Silpu, er voru konur föður hans. Og Jósef bar föður sínum illan orðróm um þá.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þetta er ættarsaga Jakobs: Þegar Jósef var sautján ára að aldri gætti hann sauða með bræðrum sínum. Sem ungur sveinn var hann vanur að fylgja sonum Bílu og Silpu, kvenna föður hans. Jósef bar þeim illa söguna við föður sinn.